top of page

Upplestur

Um verkefnið

  • Upplestur  er einfalt verkefni þar sem nemendur lesa upp texta og æfa sig í almennum upplestri og hlusta á upptöku af sjálfu sér.

  • Með því að fá að hlusta á sig sjálfa lesa upp samfelldan texta eða ljóð geta nemendur auðveldlega greint hvað er gott og hvað þarf að æfa eða lesa betur upp..

  • Hægt er að vinna með þetta verkefni í íslensku og erlendum tungumálum.

Búnaður

  • Í þessu verkefni þarf einfaldlega tæki með innbyggðan hljóðnema og næði til að taka upp hljóð og hlusta á upptökuna. 

​Verkefnalýsing

 

  • Kennari og nemendur ákveða saman hvaða texta á að lesa upp.

  • Nemandi les textann upp og tekur sig upp með hljóðupptökutæki, hægt er að nota hvaða tæki sem er ef það býður upp á upptökumöguleika.

  • Nemandi hlustar á upptökuna sína og skrifar niður hvað mætti fara betur í upplestrinum. Það gæti snúist um skýrleika, hæfilegan hraða, jafnara flæði, minna hik, framburð á ákveðnum orðum, raddstyrk, áherslur, mótun setninga, kúnstpásur og fleira. 

  • Kennari hlustar á upptökuna og skoðar hvað nemandi skrifaði niður.

  • Kennari kemur líka með ábendingar ef eitthvað vantar upp á lesturinn.

  • Nemandi æfir sig í því sem hann ætlaði að bæta.

  • Nemandi tekur upplestur sinn aftur upp.

  • Nemandi hlustar á upplesturinn og skráir hjá sér hvort hann hafi bætt sig í einhverju.

  • Hægt er að endurtaka þessi skref eins oft og kennari og nemandi vilja. Einnig má prófa að lesa upp annan texta, mögulega af öðru tagi.

© 2020

bottom of page